Til bakaPrenta
Bæjarráð Hornafjarðar - 733

Haldinn í ráðhúsi,
14.09.2015 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður,
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður,
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður,
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri,
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri.
Fundargerð ritaði: Ólöf I. Björnsdóttir, fjármálastjóri


Dagskrá: 
Fundargerð
1. 1509003F - Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 264
Fundargerð samþykkt.
 
Gestir
Jón Kristján
2. 1509004F - Umhverfisnefnd - 8
Fundargerð samþykkt.
3. 1509005F - Hafnarstjórn Hornafjarðar - 179
Ásgerður spurði út í afgreiðslu hafnarstjórnar vegna athugasemdar sem fram kom á bæjarstjórnarfundi nr. 218 deiliskipulag höfnin/Ósland. Björn Ingi vísaði í bókun hafnarstjórnar þar sem fram kemur að ekki þurfi að breyta skipulaginu. Einnig rætt um liði 4 og 5 þar sem fram kom að málið er í ferli. Einnig rætt um uppsetningu vindmyllu og sólarsellu á Austurfjörum.

Fundargerð samþykkt.
Almenn mál
4. 201509015 - Forsendur fjárhagsáætlunar 2016
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri fór yfir drög að forsendum fjárhagsáætlunar 2016. Mikil óvissa er framundan í þessum efnum.
Forsendur fyrir vinnslu fjárhagsáætlana árið 2016.pdf
5. 201509040 - Siðarreglur starfsmanna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Vísað til bæjarstjórnar.
6. 201509019 - Ráðning Skipulagsstjóra
Björn Ingi greindi frá umsóknarferli skipulagsstjóra kom fram að fjórir sóttu um stöðuna. Bæjarstjóra falið að svara umsóknum.
7. 201509045 - Öldrunarráð
Bæjarráð leggur til að stofnað verði Öldrunarráð, skipað 5 einstaklingum. Þrír tilnefndir af bæjarstjórn og tveir tilnefndir af Félagi eldri Hornfirðinga. Starfsmaður öldrunarráðs verði Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri. Starfsmanni falið að semja drög að erindisbréfi/samþykkt öldrunarráðs og upplýsa formann Félags eldri Hornfirðinga.
Stofnun Öldrunarráðs.pdf
8. 201412043 - Þátttaka í þáttaröð "Um Suðurland"
Sveitarfélaginu boðið að taka þátt í 6 þátta röð um Suðurland. Bæjarráð samþykir þátttöku að andvirði 250 þkr.án vsk. Tekið af auglýsinga- og kynningamálum í fjárhagsáætlun 2015.
Áframhald á samstarfi við N4 "að sunnan".pdf
9. 201509024 - Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2015/2016
Lagt fram og bæjarstjóra falið að senda inn umsókn.
auglýsing um byggðakvóta 2015-2016.pdf
10. 201509044 - Fundir sveitarstjóra með fjálaganefnd Alþingis haustið 2015
Lagt fram til kynningar. Bæjarstjóra falið að óska eftir fjarfundi.
11. 201509043 - Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar. Bæjarstjóra falið að mæta á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Ársfundur Jöfnunarsjóðs.pdf
12. 201408001 - Áskorun til landeigenda um uppbyggingu við Jökulsárlón
Lagt fram til kynningar.
Bæjarráð og bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur undanfarin ár lagt sitt að mörkum til að uppbygging geti átt sér stað við Jökulsárlón. Meðal annars með gerð deiliskipulags af svæðinu. Ekki hefur verið unnt að gefa út framkvæmdarleyfi samkvæmt gildandi deiliskipulagi þar sem eignarhald jarðarinnar er í formi sameignar og því nauðsynlegt að fyrir liggi samþykkt allra landeigenda fyrir framkvæmdum. Eigendur hafa ekki getað komið sér saman um framkvæmd eða framkvæmdaraðila til að byggja upp á grunni gildandi deiliskipulags.
Bæjarstjóra falið að boða til fundar með landeigendum Fells til að fara yfir stöðuna og kanna möguleika á að hefja uppbyggingu á grunni deiliskipulags.
Umsókn um framkvæmdarleyfi verður tekin fyrir í skipulagsnefnd.

Umsókn um framkvæmdaleyfi 0709 2015.pdf
13. 201509021 - Fundarboð frá Minjastofnun og forsætisráðuneytinu v/Lög um vendarsvæði í byggð-innleiðing
Sveitarfélagið Hornafjörður tilheyrir austursvæði innan Minjastofnunar og Forstöðumaður Hornafjarðarsafna mun mæta á fund á Egilsstöðum 15. september.
Fundarboð.pdf
14. 201504044 - Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2015
Lögð fram til kynningar.
124 fundargerð 150902.pdf
15. 201501065 - Fundargerðir SASS 2015
Lögð fram til kynningar. í fundargerð kemur fram að Fanney Björg Sveinsdóttir atvinnuráðgjafi SASS hefur sagt upp störfum. Bæjarráð þakkar Fanney fyrir gott samstarf undanfarin ár. Bæjarráð leggur mikla áherslu á að nýr atvinnuráðgjafi verði staðsettur á Hornafirði og hvetur áhugasama einstaklinga til að sækja um starfið, umsóknarfrestur er til 22.september og upplýsingar um starfið er að finna á vef Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga sass.is
497_ fundur stj.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00 

Til bakaPrenta